Flýtilyklar
Námsmat
Nemendur fá viðurkennt nám úr öðrum framhaldsskólum metið til f-eininga við skólann. Misjafnt er hvar námið nýtist nemanda
í grunn námsleiðar, brautargrunn eða brautarval. Falli metið nám ekki innan þess ramma fer hann í almennt val nemanda. Þó er hægt
að velja að útskrifast með s.k. almennt stúdentspróf/framhaldsskólapróf án sérvalinnar námsleiðar og þá eru ekki
gerðar aðrar kröfur um námsáfanga en að námsgrunni sé lokið. Mikilvægt er fyrir hvern og einn að fara vel yfir námsferil og skipulag
náms með umsjónarkennara.
Nemendur þurfa að fylgjast vel með því að nám sem þeir velja við skólann sé fullnægjandi undirbúningur undir frekara
nám á háskólastigi er þeir stefna á.
Hafi nemandi stundað nám við skóla sem ekki starfar samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla ber skólameistari ábyrgð á
því að hve miklu leyti námið verður metið. Við matið er skoðað hvort hægt er að meta nám jafngilt því sem skipulagt
er innan skólans og hvort námið nýtist nemanda sem nægilegur undirbúningur undir annað nám í skólanum eigi það við.
Nemendur geta einnig sótt stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem haldin eru í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Prófin eru venjulega haldin í ágúst sem og um
áramót (desember/janúar) ár hvert.
Frumkvæði SköpunÁræði





