Flýtilyklar
Námið
Menntaskólinn á Tröllaskaga starfar eftir nýjum framhaldsskólalögum frá 2008. Því getur verið
að margt komi ókunnuglega fyrir sjónir þeirra sem þekkja gamla framhaldsskólakerfið vel. Námið er metið til framhaldsskólaeininga s.k.
f-eininga og er ein eining talin 3ja daga vinna nemandans 6-8 tíma á dag. Eru nemendur hvattir til að vinna vel að námi sínu í skólanum til að
minnka vinnu á kvöldin og um helgar.
Allir nemendur þurfa að ljúka grunni náms en annars skiptast f-einingarnar sem hér segir:
| F-einingar alls | Grunnur | Brautargrunnur | Brautarval | Óbundið val | Lengd | |
| Stúdentspróf | 200 | 100 | 40 |
20 | 40 | 6-7 annir |
| Framhaldsskólapróf | 90 | 45 | 30 | 15 | 3 annir |
Námsbrautir við skólann eru: Ferðir og útivist, fisktækni, félags- og hugvísindi, listir og náttúruvísindi. Á
ferða- og útivistarbraut geta nemendur sérhæft sig annaðhvort í málum tengdum ferðamennsku eða útivist og íþróttum.
Á listabraut geta nemendur valið fagurlistir, listljósmyndun eða tónlist. Verið er að útfæra fisktækni.
Námsval við skólann mun að miklu leyti einskorðast við námsbrautirnar en einnig verður boðið upp á starfsnámsáfanga sem eru
einn tími á viku utan einnar viku um miðja önn og einnar viku í lok annar.
Nemendur geta lokið námi af ákveðinni námsbraut en auk þess geta þeir lokið almennu prófi hafi þeir tiltekinn einingafjölda en
uppfylla ekki skilyrði brautar. Þetta er hægt bæði í stúdents- og framhaldsskólaprófum.
Frumkvæði SköpunÁræði





