Flýtilyklar
Fréttir
Undirritun samnings
03.09.2010

Undirritaður hefur verið samningur við Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar um heilbrigðisþjónustu fyri rnemendur skólans. Af því tilefni komu Konráð Karl Baldvinsson forstjóri, Valþór Stefánsson, framkvæmdastjóri lækninga og reksturs ásamt Önnu Gilsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar. Með þeim á myndinni eru Lára Stefánsdóttir skólameistari og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari.
Nýnemadagur
02.09.2010
Í dag er nýnemadagur í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Í þetta sinn eru allir nemendur skólans nýnemar þannig að við gerum ráð fyrir skemmtilegum degi með fjöri og uppákomum. Nemendafélagið skipuleggur daginn af miklum dugnaði en undirbúningur hefur staðið frá skólabyrjun. Myndir
Malbikun Héðinsfjarðarganga
26.08.2010
Malbikun hefst á mánudag í Héðinsfjarðargöngum og leggur rútan af stað frá Siglufirði kl. 7:30 á meðan á
því stendur sem reiknað er með að verði um hálfur mánuður. Síðdegisferðin verður um Lágheiði og leggur af stað
frá Ólafsfirði kl. 15:30 á mánudag en síðan verða ferðir skoðaðar í samhengi við stundatöflu nemenda.
Við viljum nota tækifærið og þakka fyrir hversu mikið nemendur fá að fara um göngin sem hefur verið meira en við reiknuðum með og
gert ferðirnar auðveldari. Sérstaklega hjálpar til að önnur ferðin getur verið um göngin á meðan á malbikunartíma
stendur.
Til gamans má geta þess að reiknað er með að malbika um 600 metra á dag en tvö lög eru lögð af malbiki í göngin.
Fyrsti skóladagur
23.08.2010
Fyrsti skóladagur gekk afar vel, nemendur voru áhugasamir og duglegir við að koma sér inn í tölvukerfin sem þau þurfa að nota í
námi sínu og kynnast verkefnunum framundan.
Lesa meira
Frumkvæði SköpunÁræði





