Íþrótta og útivistarbrautin skiptist í íþróttasvið fyrir þá sem æfa íþróttir markvisst til keppni
og útivistarsvið fyrir þá sem hafa áhuga á alls kyns útivist og starfi björgunarsveita
Hæfnimarkmið íþrótta og útivistarbrautar eru:
Að nemandi
- geti séð um viðburð sem tengist íþrótta- og útivistarstarfi, s.s. kennslu, þjálfun, gönguferð eða móti sem tekur til, undirbúnings, skipulags, framkvæmdar, mats ásamt því að geta metið hlutlægt eigin frammistöðu við verkið og nýtt niðurstöðuna til að ná betri árangri.
- geti tekið þátt í upplýstri umræðu um málefni er tengjast hreyfingu, heilsueflingu, þjálfun og útivist
- geti tekið ábyrgð á þjálfun og leiðbeint öðrum
- hafi öðlast fræðilega og verklega undirstöðuþekkingu
- geti greint frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
- geti tekið þátt í rökræðum um efni sem tengjast hreyfingu ,heilsu, þjálfun og útivist
- geti stundað íþróttir og útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir, skíðaferðir, hjólreiðar, brimbrettareið og fl.
- þekki hvernig má nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
- geti fléttað hreyfingu inn í daglegt líf og starf.
- sé meðvitaður um umhverfi sitt, hafi lært að njóta þess, virða og nýta á skynsamlegan hátt með sjálfbærni í huga
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám einkum á sviði kennslu íþróttafræða og útivistar á háskólastigi
Mögulegt að fá metið nám fyrir björgunarsveitamenn frá Landsbjörgu.



Sköpun 


