Skapandi tónlist - STÓS1C03

Lýsandi heiti áfanga: Skapandi tónlist 3 á starfsbraut
Framhaldsskólaeiningar: 3
Undanfari: Enginn

Lýsinga á efni áfangans:
Áfanginn fjallar um tónlist, um hljóð, hrynjanda, laglínu og samhljóm, sem þroskandi og uppbyggjandi þátt í lífinu fyrir einstaklinginn og hópinn í heildina. Nemendur æfa mismunandi lög saman sem þau velja í sameiningu til að efla samvinnu og samkennd. Einstaklingurinn þjálfast í að hlusta á og heyra mismunandi tegundir tónlistar og að velja þau lög sem henta hópnum best til samspils. Hópurinn æfir lög saman og finnur leið til þess að allir meðlimir hópsins njóti sín sem best.

Lokamarkmið áfangans:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • hvernig tónlist hentar hópnum best
  • uppbyggingu laga
  • samspili og samvinnu


Nemendi skal hafa öðlast leikni í:

  • samspili á útvöldum lögum
  • að hlusta og heyra tónlist
  • samvinnu innan hópsins


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til:

  • að spila valin lög með hópnum.
  • að standa að tónleikum þar sem hann miðlar listrænum styrk sínum.
  • samvinnu svo allir í hópnum nýti hæfileika sína til hins ítrasta.


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar