Björgunarmaður 1 – BJÖ2A05

Lýsandi heiti áfanga: Menntun björgunarmannsins í hinum ýmsu aðstæðum
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Enginn en nemandi þarf að vera 18 og vera með samning við björgunarsveit á svæðinu

Lýsing á efni áfangans:
Grunnnám fyrir fólk sem vill starfa í björgunarsveit. Námið samanstendur af 9 stökum námskeiðum til að afla almennrar þekkingar og skilning á starfi björgunarmannsins. Markmið áfangans er að gera einstaklinginn hæfari til þess að sinna hinum ýmsu verkefnum sem koma upp í björgunarsveit.

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á

  • starfi björgunarmannsins, lögum og reglugerðum sem björgunarmaður gengst undir
  • þeim tólum og tækjum sem björgunarmaðurinn getur nýtt sér við starf sitt


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • meta hættur við sjó og vötn
  • nota fjarskiptatæki
  • ferðast við mismunandi aðstæður
  • nota áttavita og staðsetningartæki
  • meta snjóflóðahættur og leitað að félaga í snjóflóði
  • í skipulagðri leit
  • veita fyrstu hjálp í óbyggðum
  • síga í klettum, klettaklifri og ísklifri


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að :

  • vita hvaða kröfur eru gerðar til björgunarmanns sem metið er með vinnuframlagi hans til björgunarsveitarinnar
  • þekkja hættur sem felast í umgengni við snjó í fjöllum,sjó og vötn sem metið er með þáttöku í verklegum æfingum
  • beita grunnatriðum í notkun fjarskiptatækja sem metið er með verklegri æfingu í notkun fjarskiptatækja
  • ferðast um svæðið og skipuleggja ferð m.t.t. næringar, ferðahegðunar, notkunar prímusa sem er metið með verklegri þátttöku
  • nota áttavita og staðsetningartæki til að taka stefnur og rata á milli staða sem er metið með verklegri æfingu í notkun þessara tækja
  • geta tekið þátt í leit af týndu fólki sem er metið með verklegri æfingu
  • geta brugðist rétt við aðstæðum þegar slys ber að höndum á fjöllum sem er metið með verklegum æfingum
  • kunna notkun tækja við vetrarfjallamennsku s.s. mannbrodda, ísöxi, línumeðferð, sig og létt klifur og að kunna mikilvæga hnúta sem er metið með verklegum æfingum í fjallaferðum


Námsmat:
Námsmatið er fólgið í verklegum og skriflegum æfingum og prófum í sambandi við hvern hluta fyrir sig, nemendur þurfa að taka þátt í starfi með björgunarsveit og skila tímaseðli vegna þess.