Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla.
Innritað verður frá 30. janúar til 29. febrúar 2012. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast
seinna.
Umsækjendur sækja veflykil á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil
opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nánari leiðbeiningar um rafræna innritun er að finna í bréfi til forráðamanna nemenda sem afhent er
í grunnskólum landsins og einnig má finna á slóðinni menntagatt.is/kynningarefni.
Nánari upplýsingar um rafræna innritun á starfsbrautir í framhaldsskólum veitir Ragnheiður Bóasdóttir í mennta- og
menningarmálaráðuneyti. Fyrirspurnir má senda á netfangið ragnheidur.boasdottir@mrn.is
Flýtilyklar
Innritun fatlađra nemenda á starfsbraut framhaldsskóla haustiđ 2012
26.01.2012
Leit
Menntaskólinn á Tröllaskaga
Ćgisgötu 13
625 Ólafsfirđi
Sími 460 4240
Netfang: mtr@mtr.is
kt. 690310-0820
Skrifstofa skólans er opin alla
virka daga frá 8:00 til 16:00




Sköpun 


