Menntaskólinn á Tröllaskaga

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Fréttir

Undirritun samnings


Undirritaður hefur verið samningur við Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar um heilbrigðisþjónustu fyri rnemendur skólans. Af því tilefni komu Konráð Karl Baldvinsson forstjóri, Valþór Stefánsson, framkvæmdastjóri lækninga og reksturs ásamt Önnu Gilsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar. Með þeim á myndinni eru Lára Stefánsdóttir skólameistari og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari.

 


Nýnemadagur

Í dag er nýnemadagur í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Í þetta sinn eru allir nemendur skólans nýnemar þannig að við gerum ráð fyrir skemmtilegum degi með fjöri og uppákomum. Nemendafélagið skipuleggur daginn af miklum dugnaði en undirbúningur hefur staðið frá skólabyrjun.  Myndir 


Umfjöllun í Fréttablaðinu

Í dag er umfjöllun um Menntaskólann á Tröllaskaga í Fréttablaðinu sem má lesa á pdf formi á Netinu. 



Malbikun Héðinsfjarðarganga

Malbikun hefst á mánudag í Héðinsfjarðargöngum og leggur rútan af stað frá Siglufirði kl. 7:30 á meðan á því stendur sem reiknað er með að verði um hálfur mánuður. Síðdegisferðin verður um Lágheiði og leggur af stað frá Ólafsfirði kl. 15:30 á mánudag en síðan verða ferðir skoðaðar í samhengi við stundatöflu nemenda.

Við viljum nota tækifærið og þakka fyrir hversu mikið nemendur fá að fara um göngin sem hefur verið meira en við reiknuðum með og gert ferðirnar auðveldari. Sérstaklega hjálpar til að önnur ferðin getur verið um göngin á meðan á malbikunartíma stendur. 

Til gamans má geta þess að reiknað er með að malbika um 600 metra á dag en tvö lög eru lögð af malbiki í göngin.

  • Kennsla hefst 23. ágúst

    þann 23. ágúst 2010 hefst kennsla samkvæmt stundaskrá. Skólasetning er áætluð laugardaginn 21. ágúst.

  • Breytingar á húsnæði

    Nú standa yfir heilmiklar breytingar og lagfæringar á húsnæði skólans.

  • Nemendur með tölvur

    Mikilvægt er að allir nemendur mæti með tölvur strax fyrsta skóladaginn þar sem allt námsefni og námsáætlanir eru á Netinu. Áætlað er að vinna eins mikið pappírslaust og mögulegt er.

  • Afhending stundataflna
    Stundatöflur verða afhentar í skólanum 18.-19. ágúst frá 08:00 - 16:00. Þá má einnig ræða við starfsmann um töfluna.

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni
Frumkvæði SköpunÁræði

Svæði

Framsetning efnis